Bloggið Okkar
Myndir / Billeder
Uppskriftir
Klukkan
05.09.2006 16:19:31 / Danmörk

Nýja síðan !

05.09.2006

http://gydaogbensi.bloggar.is

Hilsen

B & G


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 22:23:47 / Danmörk

Ný síða...

 03.09.2006

Þá erum við enn og aftur að prófa nýja síðu. Hún er enn á tilraunastiginu en endilega kíkið á og segið okkur hvað ykkur finnst. Það eruð nú einu sinni þið sem eruð að lesa þetta...!  www.gydaogbensi.bloggar.is

Hilsen 

B & G


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 20:11:01 / Danmörk

Smá fréttaskot...

30.08.2006

Jæja, þér er svo sannarlega farið að styttast í annan endann á ágúst mánuði og alltaf er maður jafn hissa á því hvað tíminn líður hratt !     Það eru nokkrir sem við þekkjum sem eiga afmæli í dag og viljum við að sjálfsögðu óska þeim innilega til hamingju með daginn.     Þetta eru : Þórður Breki sonur Helgu og Sigga (2ja ára ), Ragnhildur Eiðunn þeirra Söndru og Hilmars (2ja ára ) og Kristín dóttir Eiðs bróðir pabba Gyðu (16 ára). Svo á hann Ingólfur sonur Krissa bróðir pabba Gyðu afmæli á morgun, hann verður 18 ára og við tökum smá forskot á sæluna og óskum honum líka til hamingju með daginn !! Algjör afmælisveisla !!  

Annars erum við byrjuð í skólanum     og lífið farið að ganga sinn vanagang hérna á Cort Adelers Gade. Það er búið að vera mjög gott veður síðan við komum út       en það var samt meiri sól síðast þegar við komum út í ágúst. Það þýðir samt ekkert að kvarta, það er allavega heitt og gott, alveg upp undir 20° hiti.  

Sigfús er hjá okkur og Bylgja kemur svo á laugardaginn og þau verða hjá okkur þangað til þau eru komin með íbúð.    Það er alltaf gaman að hafa gott fólk hjá sér !      Hann er byrjaður í skólanum og líst bara vel á.

Við söknum Camillu Mistar þvílíkt mikið, það er ekkert smá erfitt að geta ekki séð hana oftar !     Við getum bara ekki beðið eftir því að sjá hana næst þegar við komum til Íslands. Ekki það að við söknum ekki ykkar líka...við söknum ykkar þvílíkt !    

Við höfum fylgst með Rockstar Supernova á netinu     og okkur fannst Magni standa sig mjög vel eins og alltaf reyndar.    Hin eru líka mjög góð svo þetta er aldeilis að verða hörð keppni. Vonum bara að Magni verði ekki í neðstu 3 í kvöld. Heyrðum líka að kosningin hefði ekki virkað á netinu.  

Jæja, nóg komið af blaðri í bili og endilega verið dugleg að kvitta fyrir ykkur.   Höfum heyrt að það hafi verið einhver vandamál með það en reynslan segir okkur að Explorer sé betri þegar menn eru að skrifa komment heldur en Mozilla...en það gæti verið vitleysa.  

P.S. endilega takið þátt í skoðanakönnuninni okkar hérna til hægri á síðunni....takk takk !

Knús og kossar frá okkur í Århus...   

B & G


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.08.2006 00:53:29 / Danmörk

Myndir !

26.08.2006

Það eru komnar myndir     frá afmælinu hennar Camillu Mistar     og svo líka síðan við fórum í helgarferð í sumarbústað.   

Endilega kíkjið á !  

Látið svo endilega vita af ykkur með því að kvitta fyrir ykkur !   

Hilsen    

B & G


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 15:11:54 / Danmörk

Afmælisprinsessan okkar !

23.08.2006

Hún á afmæli í dag,

hún á afmæli í dag,

hún á afmæli hún Camilla,

hún á afmæli í dag !!  

Já hún Camilla Mist ofurprinsessa á afmæli í dag      og er 2ja ára.    Til hamingju með afmælið elsku snúllan okkar.     Við erum búin að halda fyrir hana afmælisveislu      og svo fær hún aðra næstu helgi hjá mömmu sinni. Það er sko nóg að gera hjá henni í þessum veislum !

Kossar og knús til þín litla dúllan okkar og njóttu dagsins ! 

Gyða átti afmæli 21.ágúst svo það er nú stutt á milli þeirra.    Hún hafði því miður engann tíma til að halda neina veislu en það komu nokkrir í heimsókn og fengu osta og döðluköku. Takk kærlega fyrir mig allir !   

Annars erum við komin til Århus     og það er alveg rosa gott að vera komin heim.   Það er auðvitað alltaf erfitt að kveðja alla     en svona er lífið. Við áttum alveg frábært sumar á Íslandi og hlökkum til að hitta alla aftur.  

Segjum þetta gott í bili...

B & G

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 01:47:23 / Danmörk

Barnaafmæli :D


19.08.2006

Þá erum við búin að halda afmæli fyrir Prinsessuna okkar.     Það er nú bara ansi skemmtilegt að undirbúa svona afmælisveislu og eigum við nú eftir að halda þær nokkrar til viðbótar !        Hún verður 2ja ára 23.ágúst   en þar sem við verðum farin út þá ákváðum við að halda veisluna í dag.    Það var rosa stuð og við buðum fjölskyldunum okkar. Prinsessan fékk að sjálfsögðu fullt af gjöfum     og svo var bökuð barbie terta handa henni líka.       Við gáfum henni Sollu stirðu dúkku sem talar og Latabæjar útvarp sem spilar 10 mismunandi lög. Þetta vakti enga smá lukku og er hún alveg dolfallin yfir þessu enda Latabæjar fan númer 1 !    Hún fékk m.a. 2 dúkkur, föt, púsluspil, pening og margt fleira. Hún skemmti sér alveg konunglega og var alveg hæst ánægð með daginn.      Við tókum yfir 100 myndir af þessu öllu saman     svo það ættu nú að koma inn nokkrar fljótlega !

Við skruppum á Hornafjörð á þriðjudag og komum aftur í gær.     Við fórum þangað til að hitta fjölskylduna hans Bensa föðurmegin og var þetta alveg frábær ferð. Ekki skemmdi fyrir að Birna koma lika með. Við fórum með Sigurði frænda hans Bensa í fullt af skemmtilegum ferðum     og þar á meðal upp á Vatnajökul...ójá...!     Það var bara það skemmtilegasta sem við höfum gert og ekkert smá flott. Við fórum líka að veiða     og skoðuðum gamla sveitabæinn sem amma hans og afi áttu heima á. Ekki má gleyma skemmtilegum heimsóknum til ömmu hans og afa sem eru alveg yndisleg og meira en lítið gestrisin. Við hittum líka hin systkini Stefáns sem öll tóku frábærlega á móti okkur og þetta var alveg mögnuð ferð.      Okkur hlakkar til næsta sumar að fara þangað og eyða aðeins meiri tíma í sveitasælunni.     


Það er langur dagur á morgun. Okkur er boðið í skírn hjá Hrefnu Rán og Telmu Sól og svo er okkur líka boðið í afmæli       hjá Sigurjónu skvísu sem varð 5 ára 12.ágúst. Um kvöldið ætlum við svo út að borða    með familiunni hennar Gyðu svo það er nóg að gera. Annars er Bensi búinn að vera hálf slappur undanfarið, sennilega með þessa pest sem allir eru með og Camilla Mist þvílíkt kvefuð.     Það er vonandi að þeim fari að batna.

Það koma fljótlega inn myndir...lofum !     Látum heyra í okkur fljótlega...þangað til næst !

B & G


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 00:46:09 / Danmörk

Verzló búin og sumarið styttist í annan endann...

08.08.2006

Jæja, þá fer heldur betur að styttast í að við förum aftur út. Erum að hugsa um að fara 22. ágúst, þá höfum við 6 daga þangað til að skólinn byrjar.

Við fórum á Síld á Sigló um helgina og þar var auðvitað stuð eins og ávalt. Við gerðum heilmikið skemmtilegt og helgin var fljót að líða.
Við fórum á Siglufjörð á fimmtudeginum, Gyða fór með Þuru og Rúnari og Jim en Bensi fékk lánaðan bíl og kom á honum úr Skagafirðinum.

Við vorum komin frekar seint en létum það ekki stoppa okkur í að grilla okkur pylsur og starta helginni !!

Föstudagurinn var tekinn frekar í fyrra lagi og skelltum við okkur beint í fjöruna í góða veðrinu. Það var algjör molla í fjörunni og Rúnar stakk sér til sunds hvorki meira né minna. Kaldur kall ! Við fórum svo í boltaleiki og tókum einn góðann fótboltaleik á þetta allt saman. Ansi mikið stuð á okkur. Síðan fórum við heim í mexíkanskann mat a la Þura og gerðum okkur klár fyrir kvöldið. Sátum að sjálfsögðu á pallinum góða og kíktum svo aðeins í bæinn.

Laugardagurinn var ekki tekinn eins snemma en á góðum tíma samt sem áður. Við fórum að veiða og Þura veiddi þennan líka fína Þorsk. Stefán og Bensi grilluðu svo hreindýrakjöt í kvöldmatinn sem var alveg æðislega gott. Tobbi, Stjáni, Addó og Katrín mættu svo á svæðið þennan dag og tókum við ærlegt djamm með þeim um kvöldið. Við sátum öll í kringum borð undir partýtjaldinu þeirra og sungum og létum öllum illum látum. Síðan fórum við öll saman á ball og skemmtum okkur þvílikt vel og vorum við að skríða heim um fimm leitið.


Sunnudagurinn var nú hálfgerður þynnkudagur og það ringdi stanslaust. Við skruppum bara í búðina og fylltum á nammibyrgðirnar og lágum inni allann daginn. Um kvöldið skelltu allir nema Bensi sér á DJ Pál Óskar. Það var geggjað stuð enda besti Dj-inn í bænum !!

Á mánudeginum héldu Gyða, Þura, Rúnar, Jim, Birna og Sibba í bæinn og Bensi og Stefán fóru í Skagafjörðinn að vinna. Allir þvílíkt sáttir eftir frábæra helgi !

Helgina 28-30 júlí fórum við litla fjölskyldan ásamt Þuru og co. og Birnu í sumarbústað í Svínadal í Hvalfirðinum. Anna Björg og Ingólfur heimsóttu okkur á laugardeginum í frábæru veðri. Við fengum æðislegt veður alla helgina og skemmtum okkur konunglega. Börnin fengu að hlaupa frjáls um og njóta sín. Við fórum í sund í Skorradal á laugardeginum í sól og blíðu og Camilla Mist naut sín í botn. Þetta er elsta starfrækta sundlaug á landinu.Við fórum líka í fjallgöngu og týndum nokkur ber. Það var frábært að eyða einni helgi utan borgarinna í sveitakyrrðinni með litlu dúllunni okkar.

Þetta er orðið gott í bili og vonandi að einhver nenni að lesa þessa ritgerð ! Það koma myndir af þessu öllu saman fljótlega.

Þangað til næst...

B & G

» 9 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 23:03:08 / Danmörk

Smá fréttaskot !

24.07.2006

Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða.    Núna erum við að verða búin að vera á Íslandi í mánuð og það er búið að líða eins og 2 dagar ! Óþolandi !   

Það er annars allt við það sama hjá okkur. Bæði að vinna eins og brjálæðingar og Bensi ekki búinn að koma neitt suður síðan hann fór fyrir 2 vikum. Hann ætlar að koma í helgarfrí á fimmtudaginn næsta og þá ætlum við að hafa Camillu Mist yfir helgina og skreppa úr bænum.    Það verður notalegt að hafa skvísuna og gera eitthvað skemmtilegt !  

Gyða fór í gær í heimsókn til Bylgju og Sigfúsar. Það var æðislegt að hitta þau aftur, það var svo langt síðan síðast.    Það var auðvitað spjallað og spjallað og áður en við vissum af var klukkan orðin hálf tvö að nóttu og tími til kominn að drífa sig heim. Takk fyrir skemmtilegt kvöld krakkar :D   

Það er allt rosa gott að frétta af Aðalbjörgu og fjölskyldu.    Litlu skvísurnar eru þvílíkt duglegar og allt stefnir í að þær komist heim í vikunni. Þær eru svo duglegar að borða að þær eru að losna við sonduna og geta þá farið heim. Gyða er búin að heimsækja þær 3 sinnum og er meira að segja búin að fá að halda á þeirri minni....vá hún er svo lítil og létt að hún fann varla fyrir henni.

Gyða fór líka með familiunni í fimmtugsafmæli hjá Eið bróðir pabba hennar á laugardagskvöldið. Það var mikið fjör og rosa gott að borða. Skemmtilegt kvöld í alla staði. Til hamingju með daginn Eiður !   

Það er komnar inn myndir     síðan á frænsystkinamótinu á Selfossi í janúar. Skemmtilegar myndir, endilega kíktið á !  

Annars er ekki mikið annað að frétta af okkur og látum þetta gott í bili. Endilega kvittið og látið vita af ykkur !   

Hilsen

B & G       


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 14:59:52 / Danmörk

Hamingjuóskir !

14.07.2006

Aðalbjörg og Svenni voru að eignast tvær litlar prinsessur í morgun.     Öllum heilsast vel og litla fjölskyldan auðvitað í skýjunum.   Önnur stelpan var rúmar 9 merkur og hin rúmar 7 merkur.

Við óskum ykkur innilega til hamingju með litlu stúlkurnar ykkar    og hlökkum til að sjá ykkur öll og knúsa !!  

Kær kveðja

B & G

P.S það eru komnar nýjar myndir    af því sem komið er af heimsókn okkar á Íslandi. Endilega kíkið á ! Það koma fleiri myndir inn fljótlega.


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 23:24:55 / Danmörk

Skemmtileg helgi :D

10.07.2006

Við áttum alveg frábæra helgi með henni Camillu Mist ofurdúllu.     Hún var hjá okkur frá því á föstudaginn til seinnipartinn í gær þá fór hún í skírnarveislu með mömmu sinni. Bensi náði í hana klukkan 14 á föstudaginn og þau komu svo í vinnuna til Gyðu klukkan 16 og náðu í hana. Við fórum svo öll í kringluna að kaupa afmælisgjöf handa Auði sætu því hún átti afmæli 7.júlí. Til hamingju með daginn sætust !!          Camilla fékk þennan líka fína bolta í dótabúðinni    og var mjög sátt með hann en hún hefði sko alveg viljað eitthvað fleira líka...hihi !     Eftir þetta fórum við bara heim að borða og sú stutta fór fljótlega að sofa    enda þreytt eftir daginn. Við hjúin skutumst með afmælisgjöfina hennar Auðar til hennar um kvöldið og foreldrar Gyðu pössuðu á meðan.

Á laugardeginum var Gyða að vinna til kl. 13 og voru þau feðgin eitthvað að dúllast hérna heima þangað til. Camilla fór í bað     og svo fórum þau út að leika sér.    Þau komu svo og sóttu Gyðu í vinnuna og það voru allir þvílíkt hrifnir af litlu skvísunni !     Camilla fékk sér svo smá kríu og svo skelltum við okkur öll á Árbæjarsafnið og kíktum á hestana    og svona. Við fengum svo að borða þar   enda amma Birna að vinna og auðvitað Kittý líka. Um kvöldið þegar Camilla var sofnuð spiluðum við við Agnar Pál, Auði og Aðalbjörgu        og skemmtum okkur frábærlega.     

Í gær fórum við og ætluðum að heimsækja Sigga og Þórð Breka en þeir voru ekki heim svo við fórum bara á róló     og kíktum svo aftur á Árbæjarsafnið. Camilla Mist var svo hrifin af hestunum     að það var þvílíkt sætt. Hún vildi bara vera í því að gefa þeim gras og pabbi hennar hafði ekki undan að rétta henni meira og meira.     Hún er sko ekki einu sinni pínu hrædd við þá. Við fengum svo aftur að borða þarna   svo það var bara veisla hjá okkur um helgina.    Camilla var auðvitað mjög ánægð með að sjá ömmu sína sem var aftur að vinna á Áræbjarsafninu ! Við fórum svo með hana til mömmu sinnar þegar hún var aðeins búin að leggja sig eftir læti dagsins.

Við erum strax farin að sakna hennar     og getum ekki beðið eftir því þegar hún verður hjá okkur næst. Þá er planið að fara í sumarbústað með Þuru, Rúnari og fjölskyldu sem verðu heldur betur stuð !   

Gyða keyrði Bensa út á land að vinna í dag.      Hann er rétt hjá Blönduósi að vinna og það er ekki alveg ákveðið hversu lengi hann verður þar.

Jæja nú er komið nóg af blaðri í bili og endilega kvittið og látið vita af ykkur ! Við látum svo myndir inn sem fyrst.  

Kveðja

B & G

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 13:14:39 / Danmörk

Á Íslandi

05.07.2006

Þá erum við að sjálfsögðu komin til Íslands og ánægð að vera búin að sjá fjölskyldu og eitthvað af vinum aftur.

Við erum bæði að vinna og byrjuðum á mánudaginn. Það er hálf skrítið að fara að vinna þar sem við erum hvorugt búin að vinna síðan síðasta sumar. Maður þarf smá tíma til að venjast aftur...hihi.

Við fórum í mat til Þuru og Rúnars á föstudagskvöldið síðasta og þar var að sjálfsögðu frábær matur eins og alltaf. Við vorum ekkert smá ánægð að sjá þau aftur síðan í brúðkaupinu í maí. Stefán og Sibba voru þar líka og það var æðislegt að hitta þau. Fyrr um daginn heimsóttum við Birnu en hún var að vinna um kvöldið svo hún komst ekki í matinn.

Um helgina gerðum við annars lítið. Gyða fór og hitti vinkonur sínar, Aðalbjörgu og Kristínu. Aðalbjörg er orðin ansi myndarleg enda stutt í að hún komi með tvíbura :D

Næstu helgi verðum við með Camillu Mist og erum svona að íhuga hvort við ættum að skella okkur í útilegu eða vera í bænum. Það kemur í ljós fljótlega en við ætlum aðeins að sjá til með hvernig veðrið verður og svona. Nennum varla að æða af stað til að vera í tjaldi í rigningu.

Annars er þetta svona það helsta og við reynum að skrifa eitthvað fljótlega ! :D

Kveðja úr rigningunni í Rvk

B & G

P.S. Við viljum óska Bylgju og Sigfúsi til hamingju með bumbubúann sem er væntanlegur í janúar ! Gangi ykkur rosa vel elskurnar :*


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 23:03:29 / Danmörk

Ísland here we come !

28.06.2006

Þá erum við næstum búin að pakka     og erum að koma til Íslands annað kvöld ! Það verður æðislegt að hitta ykkur öll og knúsa !   

Agnar Páll og Sigurbjörn Ingi fóru til Íslands í gær   eftir alveg frábæran tíma hérna með okkur.      Það var nú heldur betur tómlegt þegar þeir voru farnir en það reddast þar sem við erum að koma og hitta þá aftur á morgun ! 

Á mánudeginum fórum við öll að versla í bænum,     og þeir voru svona að gera síðustu hlutina áður en þeir færu heim. Þetta var alveg mögnuð heimsókn og langt síðan að við höfum skemmt okkur svona vel.     Við höfum örugglega sett met í pílukasti enda mikið spilað !    

Takk fyrir frábæra heimsókn strákar !  

Þá er best að fara að drífa sig í háttinn og hvíla sig fyrir ferðalagið.     

Við tökum lestina klukkan 15    og flugið er klukkan 21.25 á dönskum tíma     og erum lent á Íslandi um 23.   

Hlökkum til að sjá ykkur  !   

Kveðja

B & G


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 20:54:53 / Danmörk

Smá update

25.06.2006

Jæja, nú eru bræður Gyðu búnir að vera í heimsókn síðan á föstudagskvöldið og við margt búin að bralla !  

Í gær fórum við niður í bæ eftir að við vöknuðum að skoða smá í búðir  og svona. Það var nú ekki mikið keypt en búðirnar skannaðar fyrir áætlaðan verslunarleiðangur. Alltaf gott að vita hvað er til !     Þegar við komum heim úr bænum grilluðum við þessar dýrindis kjúklingabringur og kartöflur.  Klikkar aldrei !    Um kvöldið skemmtum við okkur hérna heima í pílu og öðru skemmtilegu     og kíktum svo á kaffihús  hérna rétt hjá.  

Í dag var byrjað á göngutúr niður á strönd      enda hátt í 30°hiti og glampandi sól.  Strákarnir 3 skelltu sér í sjóinn      og Gyða sólaði sig á meðan .    Við fórum því næst inn í skóg í fótbolta.     Völlurinn er akkúrat á stað þar sem skín sól svo við spiluðum fótbolta í miklum hita og sól. Vorum aldeilis sveitt og sæt eftir þann leik.   Eftir þetta allt saman fórum við heim og skelltum okkur í sturtu og brunuðum niður í tívoli þar sem við eyddum næstu 3 tímum. Það var þvílíkt gaman hjá okkur og við fórum nánast í öll tækin á svæðinu !!     Við enduðum daginn á pizzu niðrí bæ     og erum ný komin heim, strákarnir að horfa á HM   og planið er að taka smá pílu fyrir svefninn.

Það er sem sagt búið að vera mjög gaman hjá okkur enda ekki við öðru að búast.

Camilla Mist hringdi svo í pabba sinn í dag.      Hún var eitthvað að spyrja ömmu sína um hann og vildi endilega hringja í hann. Henni fannst svoldið skrítið að sjá hann ekki enda vön að sjá hann í tölvunni þegar hún talar við hann.  Þau töluðu smá stund og við hlökkum þvílíkt til að sjá hana í næstu viku.       Hún er bara sætust litla rósin.    

Það koma svo myndir inn fljótlega. 

Endilega kvittið og látið vita af ykkur. 

Kveðja úr sumri og sól

B & G


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 12:14:08 / Danmörk

Afmæliskveðja :D

20.06.2006

Hann á afmæli í dag

hann á afmæli í dag

hann á afmæli hann Ingólfur

hann á afmæli í dag !!   

Innilega til hamingju með afmælið elsku pabbi.   

Njóttu dagsins og við vildum að við værum hjá þér til að njóta hans með þér.

Hafðu það sem best og við hlökkum til að sjá þig eftir nokkra daga ! 

Afmæliskveðjur   

Þúsund kossar og knús  

B & G


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 10:30:44 / Danmörk

17.júní :D

17.06.2006

HÆ HÓ JIBBÝ JEY JIBBÝ JEYJJ, ÞAÐ ER KOMINN 17. JÚNÍ !

Jæja, þá er kominn 17.júní og örugglega mikið um að vera á Íslandinu góða. Það er nú allt í rólegheitum hér enda Danir ekki farnir að taka upp á því að halda upp á þjóðhátíðardag Íslendinga...það kemur að því þegar við erum búin að kaupa upp öll kompaní í Danmörku.....hihi

Annars er nú lítið að frétta af okkur héðan nema að Gyða er komin í hið langþráða sumarfrí og Bensi er búinn á miðvikudaginn.Ohh hvað það verður gott að slappa aðeins af áður en við komum til Íslands að vinna.

Bræður Gyðu eru að koma í heimsókn næsta föstudag og við hlökkum þvílíkt til. Vonandi verður gott veður og sól þegar þeir koma. Við ætlum að gera eitthvað rosa skemmtilegt enda í fyrsta skipti sem við erum í frí þegar við fáum gesti.

Gyða fór með Þurý í gærkvöldi í smá bekkjarhitting hjá bekknum hennar Þurý. Hún var nú ekki mjög lengi þar sem hún var í síðasta prófinu sínu í gær og orðin ansi þreytt. Það var samt mjög skemmtilegt og gott að komast út og gera eitthvað annað en að læra !

Bensi er annars á fullu að læra þessa dagana fyrir próf og hlakkar mikið til að vera búinn, enda mjög erfitt að sitja inni að læra þegar er komið sumar. Hann horfir svo auðvitað á HM í öllum pásum !

Við erum búin að kaupa miða til Íslands 29.júní og verðum komin seint um kvöldið. Gyða byrjar að vinna 3.júlí og Bensi sennilega á svipuðum tíma. Hlökkum til að sjá ykkur öll !

Biðjum að heilsa í bili og endilega kvittið fyrir komuna.

Hilsen

B & G

P.S. Það koma inn myndir í dag frá brúðkaupinu hjá Þuru og Rúnari og Íslandsferðinni í maí ! Endilega kíkið á þær, linkurinn er til vinstri ,,myndirnar okkar" !


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Dagsetning
10. febrúar 2012